Í morgun vaknaði ég hress eftir að mamma kom inn, öskureið
(túr?) og rak mig á lappir því ég þurfti að fara í vinnuna
eftir að pabbi hafi komið inn a.m.k. 1 sinni og ég
hafi kveikt á 101,5 og farið aftur að sofa, eða a.m.k. farið aftur
uppí rúm.
Vinnan var nú alveg ágæt svosem, lærði ný orð og svona serva
(ekki serba eða eitthvað eins og einhverjir sögðu mér).. svo önnur
nauðsynleg orð eins og plastpoki, en það er voki held ég eða
eitthvað álíka pólskt orð. Papjerós (eflaust skrifað eitthvað
vitlaust en borið svona fram).. en þetta þýðir sígarettur. Svo
lærði ég helling af nýjum orðum sem ég man ekki lengur, þannig það
er nú varla hægt að segja að ég hafi lært þau en... þrátt fyrir það
var gerð tilraun til að kenna mér.. sem já.. endaði eins og hún
endaði.
Svo toppurinn af deginum. Reddaði mér þessu í nótt, byrjaði um
kvöldið en fékk það ekki í hendurnar fyrr en um morgunin, hef samt
eflaust fengið þetta fyrr en það skiptir ekki máli, ekki nenni ég
að vakna á nóttinni.
Þetta lag er eftir nafna minn. Hreint út sagt snillingur. Idolið
mitt. Það vita eflaust allir hvern ég er að tala um, en fyrir ykkur
vitleysingana þá er ég að tala að sjálfsögðu um David
Hasselhoff.
Hann hefur gefið lífi mínu tilgang og hef ég, andri (emma?) og
jón nauðgað einu af lögunum eftir þennan frábæra listamann sem veit
að allir elska sig. Við vorum að sjálfsögðu að hlusta á þetta
frábæra lag, Du eftir David Hasselhoff sem flutti það með stæl í
myndinni Eurotrip.
Að sögn fræðimanna (nefni engin nöfn en held að jón hafi sagt
þetta..
) þá hlustuðum við á þetta lag sem er 4 mínútur og 41
sekúndur 40 sinnum á 30 mínútum. Sjálfur er ég nú ekkert svaðalega
sleipur í stærðfræði svo þetta gæti vafist fyrir mörgum, en samt
meikar þetta eflaust einhvern sense.. tekur kvarðadródina eða hvað
sem þetta nú heitir allt saman og eitthvað +- sinnum algebran af pí
og þá fær hann eflaust einhverneginn með píþagóras reglunni þetta
út. Ef ekki, þá er það eflaust einhver önnur leið.
Mér datt það snjallræði í hug að leyfa einhverjum 2 þjóðverjum,
sem hittust í fangelsi einhverstaðar, að fá þessa yndislegu
tilfinningu sem ég og andri vorum að fá við að hlusta á þetta lag.
Þeir forðuðu sér og fóru strax að vinna!! 
Þetta er allavegana án efa besta lag í heimi og allir ættu að
hlusta á það oftar en einu sinni!!.. í röð.. mæli með að skrifa það
á disk og setja það í re-play og leyfa þessum undurfögru tónum að
fara fram og til baka í hausnum á þér og rústa öllu.
Takk fyrir mig, góða nótt.